Ólafsfjörður · 66°N
Reyktur lax á blinis

Íslenskur handverksreyktur silungur & lax

Handbragð með hefð
Skoða

Vörurnar

Birkireyktur lax, birkireyktur silungur, birkireykt ýsa og grafinn lax — allt reykt í okkar eigin reykhúsi í Ólafsfirði.

Vörurnar eru seldar innanlands til verslana, hótela og veitingastaða.

Reykhúsið

„Við vinnum úr úrvals hráefni með vandvirkni og virðingu fyrir hefðinni.“

Betri vörur Reykhús · Ólafsfirði
Silungur og lax á grindum í reykofni

Ferlið

Lax og silungur eru reykt með mildum birkireyk við lágan hita — hægt ferli sem ekki er hægt að flýta. Við leggjum áherslu á gæði, ferskleika og stöðugleika í hverri einustu vöru.

01 — Söltun
Þurrsöltun í sólarhring.
02 — Þurrkun
Yfirborðið myndar húð sem tekur við reyknum.
03 — Birkireykur
Kaldreykt við lágan hita. Mildur, ekki yfirgnæfandi.
04 — Hvíld
Reykurinn jafnast út áður en varan fer frá okkur.
Ólafsfjörður úr lofti

Um okkur

Við erum íslenskt fiskvinnslufyrirtæki með um 30 ára reynslu af vinnslu laxfiska, með sérstaka áherslu á hágæða lax og silung. Fyrirtækið er staðsett í Ólafsfirði og hefur verið þar frá upphafi.

Við leggjum áherslu á sjálfbæra framleiðslu, vandað hráefni og góð vinnubrögð. Í dag eru vörurnar eftirsóttar sælkeravörur fyrir þá sem kunna að meta gæði, ferskleika og gott bragð.

30
ár í rekstri
4
tegundir
66°N
Ólafsfjörður